Endilega lesið niður og njotið minninga..
Hér eru 45 atriði sem ég fékk sent á facebook og ákvað að þýða þau, því að þau glöddu mig svo mikið... Þetta minnir mann á að það þarf ekkert alltaf svo stór og mikil atriði til að verða glaður með hvern dag... Njótið vel!!! Sum atriðanna færðu mér sérstakan yl í hjartað og það er hellingur af þessu bara ný búið að gerast... það var gaman að rifja upp við öll atriðin hvenær þetta og þetta gerðist síðast fyrir mig...
1. Verða ástfangin.
2. Hlægja svo rooosalega að þú meiðir þig í andlitinu.
3. Heit og yndisleg sturta.
4. Engin röð í búðinni.
5. Sérstakt augnatillit.
6. Fá skemmtilegt mail.
7. Fara í bíl/mótorhjólatúr á fallegum stað.
8. Heyra uppáhaldslagið sitt í útvarpinu.
9. Liggja í rúminu og heyra rigninguna dynja á þakinu.
10. Heit og hrein handklæði beinnt út úr þurrkaranum.
11. Súkkulaði shake (jarðabera eða vanillu).
12. Freyðibað.
13. Fliss.
14. Góðar samræður.
15. Ströndin
16. Finna 5000 kall í vasanum á jakkanum sem maður hefur ekki farið í síðan seinasta sumar.
17. Hlæja að sjáfum sér.
18. Horfa í augun á einhverjum og vita að sá hinn sami elskar mann.
19. Símtal sem varir lengi við einhvern sérstakan
20. Hlaupa í gegnum úðara.
21. Hlæja af engri ástæðu.
22. Heyra einhvern segja við mann að maður sér fallegur.
23. Hlæja af einkahúmor með vinum
25. Óvart heyra einhvern segja eitthvað fallegt um mann.
26. Vakna og líta á klukkuna og fatta að maður á enn nokkra tíma eftir áður en maður þarf að vakna.
27. Fyrsti kossinn (annað hvort fyrsti ever eða með nýrri manneskju)
28. Eignast nýja vini eða vera með þeim gömlu.
29. Leika við nýjan kettling eða hvolp.
30. Þegar einhver fiktar í hárinu á manni.
31. Góðir draumar.
32. Heitt súkkulaði.
33. Ferðast um Ísland með vinum.
34. Róla í rólu.
35. Mynda augnkontakt við ókunnugan.
36. Baka smákökur.
37. Fá eitthvað heimagert frá vini.
38. Halda í höndina á einhverjum sem manni þykir vænt um.
39. Rekast á gamlan vin og átt sig á því að sumt (gott eða slæmt) breytist aldrei
40. Sjá svipinn á einhverjum sem fær gjöf frá þér sem þú veist að þeim mun líka vel.
41. Horfa á sólarupprás.
42. fara fram úr á morgnanna og vera þakklátur fyrir annan fallegan dag.
43. Vita að einhver saknar þín.
44. Fá faðmalag frá einhverjum sem þér þykir mjög vænt um.
45. Vita að þú hafir gert það rétta, sama hvað aðrir segja um þig.
Vonandi hefur þú notið þess að lesa í gegnum þennan lista. Ég veit að ég gerði það og færði mér meira vor í hjarta.

4 Comments:
Yndis yndi!
Hey... ég er komin með soldið mikið af svona í Things that make me happy bókina mína og mér varð hugsað til nr 245: ,,Að spjalla við Ágústu í síma langt fram á nótt og sofna næstum". - ekki samt að sofna af leiðindum... hehe. Aldrei!
Ástarkveðja, Ingunn
Hæhæ!
Ekki ert þú Ágústa Ósk í Mosó (sem býr rétt hjá Lágafellskirkju)?
Gaman að sjá blogg frá þér, var með þér í skóla á sínum tíma:D
Ég er ekki hún... en ég held að ég þekki vinkonu hennar, hún heitir Hreindís... ég er ööörlítið eldri en hún :)
Haha...fyndið þetta komment hérna á undan. Það var pottþétt verið að tala um Ágústu sem ég þekki, hún býr rétt hjá Lágafellskirkju. :P
En fallegt blogg. Það þarf stundum svo lítið til að fá mann til að brosa og líða vel. Ef maður myndi nú alltaf meta það nógu vel!
Á mínum lista væri alveg: ,,Að hitta Ágústu þegar ég hef ekki séð hana lengi. Líka bara að hitta Ágústu þó ég hafi hitt hana í gær!"
Saknisakn! :)
Hreindís
Post a Comment
<< Home